Upplýsingar til próftakenda bóklegra atvinnuflugmannsprófa (ATPL)

    Flugmálastjórn vill benda próftökum á eftirfarandi reglur sem gilda fyrir ATPL prófin:
  • Próftökum ber að ljúka öllum 14 prófum með lágmarksárangri 75% á innan við 18 mánuðum.
  • Próftaki fær að hámarki 4 tilraunir fyrir hvert stakt próf.
  • Próftaki fær að hámarki 6 prófsetur (sittings) til þess að ljúka öllum prófum.

Einnig er ástæða til að benda á að ATPL útskrift úr bóklegum prófum Flugmálastjórnar gildir til útgáfu CPL(A) og IR(A) í 36 mánuði, talið frá þeirri dagsetningu sem próftaki lýkur öllum bóklegum prófum.