Breytt skírteinisnúmer á skírteinum flugvéltækna útgefin frá og með júlí 2010.
Flugmálastjórn Íslands hefur frá og með júlí 2010 breytt skírteinisnúmerum á skírteinum flugvéltækna þannig að forskeytið " IS.66." bætist framan við núverandi númer. Öll ný skírteini- og endurútgefin munu bera númer með þessu forskeyti.
Rétt tilvísun í númer skírteina flugvéltækna í skjölum verður því framvegis "IS.66.XXXX", þar sem IS er landsbundið auðkenni fyrir Ísland og XXXX táknar gamla raðnúmer skírteinishafans - sem verður óbreytt. Flugvéltæknar þurfa því að nota þetta númer þegar þeir votta viðhald á eigin Part 66 skírteini.
Sjá nánar rg. 2042/2003, Annex III, Appendix VI (íslensk reglugerð 206/2007, III. viðauki, VI viðbætir)
Allar fyrirspurnir um skírteini flugvirkja skulu sendar á netfangið part66@caa.is