Nýjar reglur um skírteini flugliða

VÚt er komin ný reglugerð frá Evrópusambandinu sem hefur að geyma nýjar reglur um skírteini flugliða. Reglurnar ganga undir heitinu Part-FCL og munu taka gildi 8. apríl 2012 – þó verður um að ræða ákveðin aðlögunarfrest varðandi suma þætti sem ríki geta nýtt sér en það skýrist nánar á síðari stigum Reglurnar verða innleiddar í íslenskan rétt á grundvelli EES-samningsins og munu leysa núverandi reglugerðir um skírteini flugliða af hólmi. Væntanlegar reglur byggja á svokölluðum JAR-FCL reglum sem hafa verið í gildi á Íslandi um árabil. Hinar nýju reglur munu þó hafa í för með sér ýmsar breytingar þ.m.t. hvað varðar gildissvið. Þær munu þannig ekki eingöngu taka til skírteina flugliða á flugvél/þyrlu líkt og JAR-FCL reglurnar heldur munu þær einnig ná til svifflugmanna og stjórnenda loftbelgja. Hér á eftir er reynt að gera grein fyrir helstu breytingum og nýmælum sem væntanlegar reglur munu hafa í för með sér fyrir einstakling. Vakin er athygli á því að eftirfarandi umfjöllun er eingöngu sett fram í upplýsingaskyni og að ekki er um tæmandi greiningu á Part-FCL reglunum að ræða.

    Ný skírteini
  • Eftir gildistöku Part-FCL reglnanna mun Flugmálastjórn hætta að gefa út JAA skírteini og þjóðarskírteini fyrir flugliða. Þess í stað verða gefin út ný skírteini svokölluð Part-FCL skírteini, sem gilda á öllu EES-svæðinu.
    JAA skírteini halda gildi sínu
  • JAA skírteini gefin út fyrir gildistöku hinna nýju reglna munu halda gildi sínu áfram. Handhafar þeirra munu, þegar kemur að endurnýjun skírteinisins, fá gefið út Part-FCL skírteini án þess að þurfa að uppfylla nokkur ný skilyrði.
    Þjóðarskírteinum þarf að umbreyta
  • Part-FCL reglurnar munu hafa það í för með sér að hætt verður að gefa út þjóðarskírteini og munu þau endanlega falla úr gildi 8. apríl 2014. Handhafar þjóðarskírteina þurfa því annaðhvort að umbreyta skírteinum sínum í JAA skírteini fyrir 8. apríl 2012 eða í hin nýju Part-FCL skírteini eftir gildistöku Part-FCL reglnanna. Flugmálastjórn hvetur alla handhafa þjóðarskírteina til að umbreyta skírteinum sínum sem fyrst. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Flugmálastjórn í síma 569-4100.
    Nýr flokkur skírteina fyrir frístunda flugmenn
  • Einnig verður með nýju reglunum innleiddur nýr flokkur skírteina fyrir létt loftför (light aircraft pilot licence). Skírteinið er ætlað þeim sem vilja eingöngu fljúga léttum loftförum (undir 2000 kílóum) í tómstundaskyni.
    Nýjar áritanir
  • Með Part-FCL reglunum verða einnig teknar upp nýjar áritanir fyrir listflug, flug með borða auk sérstakrar fjallaflugsáritunar.