Heilbrigðiskröfur
Öllum handhöfum flugliðaskírteina ber skylda til að vera handhafar sérstaks JAR-FCL heilbrigðisvottorðs. Að lokinni fullnægjandi heilbrigðisskoðun hjá fluglækni, sem fer fram í samræmi við kröfur JAR-FCL 3, gefur fluglæknir út 1. eða 2. flokks heilbrigðisvottorð. Fyrir skírteini flugnema, einkaflugmanns, svifflugmanns og fisflugmanns þarf 2. fokks vottorð en fyrir atvinnuflugmannsskírteini og flugvélstjóraskírteini þarf 1. flokks vottorð sem gerðar eru meiri kröfur fyrir. Gildistími 1. og 2. flokks heilbrigðisvottorðs er mismunandi.
Handhafar flugumferðastjóraskírteina þurfa 3. flokks vottorð sem er samkvæmt Reglugerð 404/2008 um skírteini flugumferðarstjóra.
Fyrsta flokks JAR-FCL heilbrigðisvottorð
- fyrir atvinnuflugmenn gildir í 12 mánuði til fertugs fyrir flugmenn í einstjórnarloftförum og til sextugs fyrir flugmenn í fjölstjórnarloftförum, eftir það gildir vottorðið í 6 mánuði.
Fyrir flugvélstjóra gildir vottorðið í 12 mánuði.
Annars flokks JAR-FCL heilbrigðisvottorð
- fyrir flugnema, einkaflugmenn, svifflugmenn og fisflugmenn gildir í 60 mánuði til fertugs, síðan í 24 mánuði til fimmtugs og í 12 mánuði eftir það.
Þriðja flokks Evrópu heilbrigðisvottorð:
- Flugumferðarstjórar þurfa sérstakt Evrópuvottorð, 3. flokks heilbrigðisvottorð. Kröfur um það eru samkvæmt Reglugerð nr. 404/2008 og byggjast á stöðlum í ICAO Annex 1 og Tilskipun 2006/23/EC. Það vottorð gildir í 24 mánuði til fertugs og í 12 mánuði eftir það.
Flugvéltæknar og flugumsjónarmenn þurfa ekki heilbrigðisvottorð.
Fluglæknar starfa í Fluglæknasetri í Ármúla 1 a í Reykjavík. Einnig eru fluglæknar á Akureyri, Egilstöðum og á Ísafirði.