JAR-FCL skírteini flugmanna

    Einkaflugmannsskírteini (PPL(A))
  • Handhafi einkaflugmannsskírteinis/flugvél má stjórna flugvélum sem hann hefur áritanir á í einkaflugi en hann má ekki taka greitt fyrir það (Sjá JAR-FCL 1.110(a)).
  • Til að fljúga næturflug þarf handhafi skírteinisins að uppfylla kröfur JAR-FCL varðandi það og fá skráða næturflugsáritun í skírteini sitt. (Sjá JAR-FCL 1.110 (b)(2) og JAR-FCL 1.125 (c)).

    Atvinnuflugmannsskírteini (CPL(A))
  • Handhafi atvinnuflugmannsskírteinis/flugvél má neyta allra sömu réttinda og einkaflugmaður.
  • vera flugstjóri í einstjórnarflugvélum í flutningaflugi.
  • vera aðstoðarflugmaður í fjölstjórnarflugvélum í flutningaflugi. (Sjá JAR-FCL 1.150 (a)).

    Atvinnuflugmannsskírteini 1. flokks (ATPL(A))
  • Handhafi atvinnuflugmannsskírteinis 1. flokks/flugvél má neyta allra sömu réttinda og handhafi einkaflugmannsskírteinis, atvinnuflugmannsskírteinis og blindflugsráritunar.
  • vera flugstjóri eða aðstoðarflugmaður í flutningaflugi í einstjórnarflugvélum og fjölstjórnarflugvélum. (Sjá JAR-FCL 1.275(A)).

    Einkaflugmannsskírteini (PPL(H))
  • Handhafi einkaflugmannsskírteinis/þyrla má stjórna í einkaflugi þyrlu, sem hann hefur tegundaráritun á, en hann má ekki taka greitt fyrir (Sjá JAR-FCL 2.110(a)).
  • Til að mega fljúga næturflug þarf handhafi skírteinisins að uppfylla kröfur í JAR-FCL 2 varðandi það og fá næturflugsáritun í skírteini sitt. (Sjá JAR-FCL 2.110 (b)(2) og JAR-FCL 2.125 (c)).

    Atvinnuflugmannsskírteini (CPL(H))
  • Handhafi atvinnuflugmannsskírteinis/þyrla má neyta allra sömu réttinda og einkaflugmaður.
  • vera flugstjóri í einstjórnarþyrlum í flutningaflugi.
  • ef hann hefur bóklegt ATPL próf vera aðstoðarflugmaður í fjölstjórnarþyrlum í flutningaflugi.

    Atvinnuflugmannsskírteini 1. flokks (ATPL(H))
  • Handhafi atvinnuflugmannsskírteinis 1. flokks/þyrla má neyta allra sömu réttinda og handhafi einkaflugmannsskírteinis og atvinnuflugmannsskírteinis.
  • vera flugstjóri eða aðstoðarflugmaður í flutningaflugi í einstjórnar- og fjölstjórnarþyrlum.