Hvað þarf að gera til þess að fá útgefið atvinnuflugmannsskírteini?
- Það þarf að fara á námskeið fyrir atvinnuflugmannsskírteini hjá samþykktum flugskóla.
Til þess að fá að setjast á áfangaskipt námskeið fyrir atvinnuflugmannsskírteini þarf umsækjandi að vera handhafi einkaflugmannsskírteinis, hafa áunnið sér 150 fartíma og sýna fram á nægilega kunnáttu í ensku, stærðfræði og eðlisfræði.
Námið er bæði bóklegt og verklegt. Hér á landi er einungis í boði bóklegt námskeið sem lýkur með bóklegu prófi fyrir meiraprófs atvinnuflugmannskírteini, þ.e. fyrir atvinnuflugmannsskírteini 1. flokks (ATPL) og blindflugsáritun (IR). Í námsefninu eru 14 námsgreinar og kennslutíminn u.þ.b. 650 klst.
Flugmálastjórn heldur bóklegu prófin og spurningar, sem eru á ensku, eru dregnar úr spurningabanka JAA og því sameiginlegar fyrir öll aðildarríki JAA. Lágmarkseinkunn er 75% í hverri námsgrein. Prófinu þarf að ljúka á innan við 18 mánuðum og það gildir í 36 mánuði til að ljúka verklegu námi fyrir atvinnuflugmannsskírteini og blindflugsáritun (CPL/IR).
Í verklega náminu skulu m.a. felast minnst 25 fartímar með kennara ásamt 10 blindflugstímum. Heildarfartími á áfangaskiptu námskeiði þarf að vera minnst 200 klst. Þegar öllum bóklegum prófum er lokið og fengin útskrift frá skóla er sótt um verklegt próf, færnipróf, hjá skírteinadeild flugöryggissviðs Flugmálastjórnar. Prófið er tekið hjá prófdómurum Flugmálastjórnar og á að taka í 4 manna flugvél með uppdraganlegan lendingarbúnað og skiptiskrúfu. Að síðustu er sótt um atvinnuflugmannsskírteini hjá skírteinadeild og þarf umsækjandi að vera handhafi 1. flokks heilbrigðisvottorðs og vera orðinn 18 ára gamall.
Hvað má handhafi atvinnuflugmannsskírteinis gera ?
Hann má ráða sig í launað flugmannsstarf hjá flugrekanda. Ef skírteinið og viðeigandi heilbrigðisvottorð er í gildi getur hann stjórnað þeim einstjórnarflugvélum sem hann hefur gilda áritun á.
Yfirleitt þarf þó blindflugsáritun til þess. Til að flytja farþega þurfa allir flugmenn að hafa áður framkvæmt 3 flugtök og 3 lendingar á síðustu 90 dögum á viðkomandi tegund loftfars.
Handhafi blindflugsáritunar á tveggja hreyfla flugvél getur, ef hann hefur að baki 100 fartíma sem flugstjóri á flugvélar og bóklegt ATP próf, farið á námskeið fyrir fjölstjórnarflugvélar (t.d. Boeing 737 eða 757) og orðið aðstoðarflugmaður. Til þess að verða flugstjóri á fjölstjórnarflugvélar þarf að vera handhafi meiraprófsskírteinis, þ.e. atvinnuflugmannsskírteinis 1. flokks (ATPL) og til þess þarf m.a. 1500 fartíma og þar af 500 á fjölstjórnarflugvéli.
Hvað er blindflug og hvernig fæst blindflugsáritun?
Blindflugstími er sá tími sem floginn er eingöngu eftir mælitækjum án viðmiðunar utan stjórnklefans. Þegar ekki eru sjónflugsskilyrði er flogið samkvæmt blindflugsreglum (IR), en til þess þarf flugmaðurinn að hafa blindflugsáritun í skírteini sínu.
Blindflug er kennt í samþykktum skólum og er bæði bóklegt og verklegt:
- Bóklega blindflugsnámið felst í bóklega atvinnuflugsnámskeiðinu sem lýkur með bóklegu ATPL prófi. Einnig er hægt að fara á sérstakt bóklegt blindflugsnámskeið, t.d. fyrir einkaflugmenn, ef það er í boði hjá samþykktum skóla.
- Verklega námið er 50 kennslutímar fyrir blindflugsáritun á einshreyfilsflugvél eða 55 fyrir tveggja hreyfla flugvél. Prófdómari Flugmálastjórnar tekur, eftir útskrift frá skóla, blindflugsnemann í færnipróf og síðan er sótt um blindflugsáritun sem er skráð í flugmannsskírteinið í skírteinadeild flugöryggissviðs Flugmálastjórnar.
Sjá E-kafla í reglugerð nr. 401/2008 sem er um skírteini flugmanna á flugvél.
Hvað er áritun í skírteini?
Til þess að geta neytt þeirra heimilda sem felast í skírteini flugmanns þarf skírteinið og áritanir í því að vera í gildi. Til þess þarf að framlengja eða endurnýja réttindin með vissu millibili.
Framlenging er gerð þegar áritanir eru ennþá í gildi. Endurnýja þarf þegar þær eru fallnar úr gildi.
Gildistími skírteina er 5 ár eftir það þarf að endurútgefa þau á 5 ára fresti.
Áritanir gilda mismunandi lengi:
Blindflugsáritun (IR)
- gildir í eitt ár og þarf því hæfnipróf hjá prófdómara á eins árs fresti til þess að hún sé í gildi.
Flokksáritun á tveggja hreyfla einstjórnar flugvélar með bulluhreyfli (MEP)
- gildir í eitt ár og fyrir hana er kennt í samþykktum skólum og er hæfniprófið hjá prófdómara tekið samtímis blindflugshæfniprófi ef um báðar áritanir er að ræða.
Flokksáritun á einshreyfilsflugvélar með bulluhreyfli (SEL)
- gildir í tvö ár og þarf færnipróf hjá prófdómara til endurnýjunar ef áritunin ef fallin úr gildi. Ef áritunin er í gildi þarf hæfnipróf til framlengingar ef flugmaðurinn uppfyllir ekki fartímakröfur á seinna ári gildistímans, þ.e. 12 fartíma, 6 sem flugstjóri og 12 flugtök og lendingar, og fer í stað hæfniprófs í einnar klst æfingaflug með flugkennara á seinna ári gildistímans.
Tegundaráritun
- gildir í eitt ár og er færð í skírteinið fyrir sérhverja tegund fjölstjórnarflugvéla sem gerðar eru fyrir fleiri en einn flugmann og þær sem reglugerðir krefjast að stjórnað sé af fleiri en einum flugmanni ásamt ýmsum öðrum flugvélum. Þarf því árlega hæfnipróf á hverja tegund. Sjá F-kafla í reglugerð nr. 401/2008 sem er um skírteini flugmanna á flugvél.
Flugkennaraáritun
- Nám fyrir flugkennaraáritun fer fram í samþykktum flugskólum og er bæði bóklegt og 30 klst verklegt. Prófdómari Flugmálastjórnar prófar í munnlegu prófi í bóklegum greinum og í færniprófi. Áritunin fæst í skírteindeild flugöryggissviðs og gildir í 3 ár. Þarf því að framlengja eða endurnýja hana á þriggja ára fresti til að halda henni í gildi. Í fyrstu 100 kennslutímana takmarkast heimildir flugkennara við að kenna undir stjórn fullgilds flugkennara og síðan fást smám saman auknar heimildir. Sjá nánar kröfur varðandi kennaraáritanir í H-kafla í reglugerð nr. 401/2008 um skírteini flugmanna á flugvél.
Hvaða reglur gilda um heilbrigðisvottorð?
Skylt er að hafa gilt heilbrigðisvottorð til að fá útgefið skírteini flugmanns og til að halda því í gildi.
Heilbrigðisvottorðið þarf að vera í gildi þegar farið er í færni- eða hæfnipróf og fyrsta einflug. Samþykktir fluglæknar gefa út heilbrigðisvottorð fyrir handhafa og umsækjendur um skírteini flugmanna.
Fyrir flugmenn er um tvenns konar heilbrigðisvottorð að ræða:
- 1. flokks vottorð fyrir atvinnuflugmenn
- 2. flokks fyrir einkaflugmenn
Sjá nánar um gildistíma heilbrigðisvottorða og hvar fluglæknar starfa á síðunni
Almennt um skírteini.
Hvaða reglur gilda um flugdagbók?
Allir flugmenn eiga sjálfir að færa flugdagbók.
Þeir sem eru handhafar JAR-FCL skírteina þurfa að færa sérstaka JAA flugdagbók. Flugdagbókin á alltaf að fylgja með öllum umsóknargögnum sem lögð eru inn til skírteinadeildar. Sjá grein JAR-FCL 1.080 í reglugerð nr. 401/2008 um skírteini flugmanna á flugvél.