Hvaða flugskólar starfa á Íslandi?

Samþykktir flugskólar eru: Flugskóli Helga Jónssonar, Flugskóli Íslands og Flugskólinn Geirfugl allir staðsettir á Reykjavíkurflugvelli. Þeir eru samþykktir m.a. fyrir kennslu á flugvélar til einkaflugmannsskírteinis, atvinnuflugmannsskírteinis, blindflugsáritunar, áritunar á einshreyfils flugvélar, áritunar á fjölhreyfla einstjórnarflugvélar og flugkennaraáritunar.
Skráðir flugskólar eru: Flugskóli Akureyrar á Akureyrarflugvelli, Flugskólinn Geirfugl á Reykjavíkurflugvelli og Keilir á Keflavíkurflugvelli sem hafa leyfi til kennslu á flugvélar til einkaflugmannsskírteinis og áritunar á einshreyfils, einstjórnarflugvélar með bulluhreyfli.