Hvað þarf að gera til að verða þyrluflugmaður?
Þyrluflugmaður þarf að vera handhafi skírteinis þyrluflugmanns. Fyrir þyrluflugmenn gilda í stórum dráttum svipaðar kröfur og heimildir og fyrir flugmenn á flugvél. Kröfur um fartímafjölda eru þó ekki alveg sömu. Nemandi á áfangaskiptu námskeiði, þarf t.d. minnst 185 fartíma alls til að fá útgefið atvinnuflugmannsskírteini á þyrlu. Engar flokksáritanir eru gefna á þyrlur, aðeins tegundaráritanir og þær gilda í eitt ár. Hér hefur tíðkast að fara í bóklegt nám fyrir flugvél og taka síðan viðbótar bókleg próf fyrir þyrlu. Verklega flugmannsnámið á þyrlu er stundað hjá þyrluflugskóla. Eins og málum er háttað í dag, er aðeins hægt að stunda hér verklegt þyrlunám fyrir einkaflugmannsskírteini og þarf að fara utan til aðildarríkja JAA í nám fyrir atvinnuflugmannsskírteini á þyrlu. Innlendu íslensku þyrluskírteinin sem voru gefin út fyrir 31. desember 2004 geta gilt áfram en það þarf að uppfylla kröfur í JAR-FCL 2 varðandi áritanir, hæfnipróf og heilbrigði. Hægt er að skipta innlendum þyrluskírteinum í JAR-skírteini. Í því sambandi gildir tafla í 1. viðbæti við JAR-FCL 2.005 í FCL 2 í Reglugerð um skírteini. Sjá nánar JAR-FCL 2 í Reglugerð. nr. 402/2008 um skírteini flugmanna á þyrlu.