Eyðublöð

Þjálfunar- og skírteinadeild hefur umsjón með útgáfu skírteina einstaklinga sem varða réttindamál í flugi.

    Upplýsingar um kröfur varðandi skírteini, þ.m.t. þjálfun, próf fyrir er einkum að finna í viðkomandi reglugerðum nr. 400, 401, 403 og 404 /2008.
    Skýringar varðandi algengar spurningar er að finna hér á vinstri spássíu.
  • Umsækjendum um skírteini og skírteinishöfum er bent á að senda almennar fyrirspurnir ánetfangið: fcl@caa.is
  • Fyrirspurnir varðandi skírteini flugvéltækna Part-66 skal senda á netfangið: part66@caa.is Stefnt er að því að svara öllum fyrirspurnum innan þriggja daga frá því að þær berast.
  • Skráningu í bókleg próf skal senda á netfangið: prof@caa.is
    Starfsemi deildarinnar er í meginatriðum fjórþætt.
  • Deildin fylgist með þekkingu og færni flugliða og sér um útgáfu og endurútgáfa skírteina og staðfestir að flugliðar hafi öðlast þá þekkingu og færni sem tilskilin er fyrir tiltekin réttindi og að þeir hafi viðhaldið þeirri þekkingu og færni. Einnig annast deildin útgáfu skírteina flugvéltækna og flugumferðarstjóra í samvinnu við aðrar deildir.
  • Deildin gefur út heimildir til að mennta og þjálfa flugmenn og fylgist með þeirri starfsemi t.d. varðandi flugskóla sem kenna til einkaflugs- og atvinnuflugsprófs ásamt ýmsum viðbótaráritunum.
  • Deildin annast öll bókleg og verkleg próf til einka- og atvinnuflugs og ber einnig ábyrgð á prófum til hvers konar tegundaráritunar og annast prófdómarar á vegum Flugmálstjórnar þau.
  • Starfsemi deildarinnar felst einnig í því að veita heimild til handa fluglæknum til að annast skoðanir flugliða og að fylgjast með þeirri starfsemi. Farið er yfir allar heilbrigðisskoðanir og ber heilbrigðisskor ábyrgð á stjórnun á útgáfu heilbrigðisvottorða.

Starfsemi skírteinadeildar byggir mikið á starfi sérfræðinga í hlutastarfi. Með þessu móti fæst aðgangur að sérþekkingu á afmörkuðum sviðum. Þessi sérþekking er nauðsynleg til að geta veitt heimildir, annast próf og fylgjst með menntunar- og þjálfunarstarfsemi.
Daglega berst fjöldi fyrirspurna einkum varðandi nám og réttindi. Það er stefna flugöryggissviðs að útgáfur, endurútgáfur og áritanir í skírteini séu afgreiddar rösklega og að útgáfur séu tilbúnar á þriðja vinnudegi eftir að umsókn hefur verið lögð inn enda hafi öll nauðsynleg gögn borist.