Þjálfun öryggis- og þjónustuliða
Almennt
Til að geta starfað sem öryggis- og þjónustuliði þarf að uppfylla kröfur sem skilgreindar eru í reglugerð um flutningaflug nr. 1263/2008 með síðari breytingum. Með reglugerðinni og síðari breytingum á henni voru innleidd ákvæði reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 3922/91 um samræmingu á tæknikröfum og stjórnsýslumeðferð á sviði flugmála með síðari breytingum. Almennt er talað um reglugerð (EBE) nr. 3922/91 og síðari breytingar á henni undir samheitinu EU-OPS.
Grunnþjálfun og þjálfun vegna flugvélaskipta.
Í grófum dráttum má skipta þjálfun öryggis- og þjónustuliða niður í grunnþjálfun annars vegar og þjálfun fyrir flugvélaskipti og mismunaþjálfun hins vegar.
Grunnþjálfunarnámskeið í öryggismálum eru annaðhvort haldin af flugrekendum eða flugskólum. Hér á landi er boðið upp á grunnþjálfunarnámskeið um öryggismál fyrir öryggis- og þjónustuliða í tveimur flugskólum: Flugskóla Íslands og Keili flugakademíu. Flestir flugrekendur halda jafnframt sín eigin grunnþjálfunarnámskeið um öryggismál. Það að hafa lokið slíku námskeiði veitir í sjálfu sér engin réttindi en útskrifaðir nemendur fá útgefna staðfestingu þess efnis að þeir hafi lokið grunnþjálfunarnámskeiði um öryggismál með tilskildum árangri.
Ekki er nægjanlegt að hafa lokið grunnþjálfunarnámskeiði um öryggismál til þess að geta hafið störf sem öryggis- og þjónustuliði. Til að starfa sem öryggis- og þjónustuliði þarf einnig að ljúka þjálfun vegna flugvélaskipta. Þjálfun vegna flugvélaskipta er á vegum flugrekenda. Í þeim tilvikum sem umsækjandi um starf öryggis- og þjónustuliða hefur lokið grunnþjálfunarnámskeiði hjá flugskóla getur flugrekandi sleppt því að senda hann á grunnþjálfunarnámskeið og látið hann beint í þjálfun vegna flugvélaskipta. Vakin er sérstök athygli á því að það er algerlega undir viðkomandi flugrekanda komið hvort hann nýtir sér þennan möguleika.