Hvað verð ég að gera áður en ég mæti til innritunar í brottfararsal flugstöðvar?
Þegar pakkað er niður fyrir ferðalag ætti að hafa í huga að snyrtitöskum, tannkremi, hárvörum, ilmvatnsglösum, kremi, rakspíra, svitalyktareyði, sápum, raksápu og öðrum sambærilegum hlutum er best fyrir komið í innrituðum farangri. Mundu að pakka einnig hlutum í innritunarfarangur sem ekki eru leyfðir í handfarangri. Hlutir eins og skæri, naglaþjalir og vasahnífar verða að fara í innritaðan farangur. Ef slíkir hlutir finnast í handfarangri við öryggisskoðun er farþeganum undantekningarlaust meinað að halda áfram með hlutinn í gegnum öryggishlið.
Hvernig get ég flýtt fyrir öryggisleit?
Vertu tilbúin(n) að sýna öryggisvörðum ferðaskjöl/brottfararspjald og/eða skilríki/vegabréf til skoðunar Vertu tilbúin(n) að setja handfarangur í plastbakka við færibandið fyrir framan gegnumlýsingarvél séu þeir fyrir hendi.
Vertu búin(n) að:
- Taka plastpokann með vökvunum úr handfarangri taka fartölvu og önnur stærri rafmagnstæki úr tösku
- Tara úr yfirhöfn, jakka
- Taka af þér belti og tæma vasa
Þessa hluti skal meðal annarra skima sérstaklega:

Hvað gerist ef bannaðir hlutir finnast i handfarangri?
Ef bannaðir hlutir (t.d. oddhvassir hlutir, vökvar í stærri umbúðum en 100 ml) finnast við öryggisleit fær farþeginn ekki að fara með þá inn fyrir öryggishlið.
Þegar farþegi er kominn í öryggisleit er of seint að koma bönnuðum hlutum fyrir í áður innrituðum farangri. Aðstaða til að geyma bannaða hluti er ekki fyrir hendi í flugstöðvum á Íslandi.