Tjón á farangri
Á grundvelli laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, alþjóðlegra samninga kennda við Varsjá frá 1929 auk samningsauka, viðbótarbókana og Montreal-samningsins frá 1999, ber flytjandi ábyrgð á tjóni sem verður af völdum tafa í flutningi á farþegum, farangri og farmi. Þó verður flytjandi ekki talinn bera ábyrgð á tjóni sem orsakast af töfum í flutningi geti hann sannað að hann og starfsmenn hans og umboðsmenn hafi viðhaft þær aðgerðir sem sanngjarnt getur talist að viðhafðar séu eða að ógerlegt hafi verið að framkvæma slíkar aðgerðir.
Flytjandi ber ábyrgð á tjóni á farangri:
- sem verður ef innritaður farangur glatast, skemmist eða eyðileggst ef tjónsatburðurinn á sér stað í loftfari, eða meðan innritaður farangur er í vörslum flytjanda, starfsmanna hans eða umboðsmanna.
- á óinnrituðum farangri, þar með töldum persónulegum eigum, ef tjón má rekja til sakar hans, starfsmanna hans eða umboðsmanna.
- ef flytjandi viðurkennir að hafa glatað innrituðum farangri, eða innritaður farangur kemur ekki fram innan 21 dags eftir að áætlað var að hann kæmi á áfangastað.
Flytjandi er ekki ábyrgur ef tjón á farangri má rekja til eðlislægra galla eða ástands farangurs.
Ábyrgð flytjanda er takmörkuð við 1.150 SDR (sérstök dráttarréttindi) vegna hvers farþega, nema farþegi hafi við innritun farangurs sérstaklega tilgreint þá hagsmuni sem tengdir eru við afhendingu farangurs á ákvörðunarstað og greitt umkrafið aukagjald.
Verði tjón ber viðtakanda að tilkynna flytjanda það jafnskjótt og þess verður var, í síðasta lagi sjö dögum eftir viðtöku ef um innritaðan farangur er að ræða. Ef um töf er að ræða skal tilkynning hafa borist í síðasta lagi tuttugu og einum degi frá því að farangur hefði átt að vera afhentur.
Nú er tjón eigi tilkynnt áður en liðnir eru tímafrestir þeir sem um getur í 2. mgr. og fellur þá niður sérhver krafa á flytjanda, nema hann hafi farið sviksamlega að ráði sínu.
Réttur til skaðabóta samkvæmt þessum kafla fyrnist ef mál er eigi höfðað áður en tvö ár eru liðin frá því er loftfar kom á ákvörðunarstað eða tvö ár eru liðin frá þeim tíma er loftfar skyldi koma þangað eða frá því að flutningur stöðvaðist.