Ágústa R. Jónsdóttir, deildarstjóri flugverndar- og flugvalladeildarÁgústa R. Jónsdóttir, deildarstjóri flugvalla- og flugverndardeild
Beinn sími: 569 4181
Fax: 562 3619
agusta@caa.is








Deildin hefur eftirlit með tveimur öryggisþáttum í flugi, þ.e. flugvernd og flugvöllum. Auk þess veitir deildin heimildir, samþykki og leyfi í umboði Flugmálastjórnar. Dæmi um heimildir eru samþykki flugverndaráætlana flugrekenda og flugvalla, skírteini og starfsleyfi flugvalla. Eftirlitið er einnig í formi úttekta sem starfsmenn deildarinnar framkvæma. Úttektirnar taka meðal annars mið af reglugerðum, flugverndaráætlunum, flugvallarhandbókum, gæðakerfum og öryggisstjórnarkerfum. Til viðbótar veitir deildin sérfræðiþjónustu til þeirra sem þess óska um málaflokka er við koma deildinni.

Flugverndar og flugvalladeild var stofnuð vorið 2004 innan flugöryggissviðs. Með tilkomu nýrra reglna og krafna er varða öryggi í flugvernd og á flugvöllum og var eðlilegt að stofnuð yrði sérdeild um þessa málaflokka. Til marks um örar breytingar í málaflokkum deildarinnar undanfarin misseri þá tók reglugerð um flugvelli gildi í apríl 2004 og var endurútgefin árið 2007.  Reglugerð um flugvernd var gefin út árið 2005 og er nú í heildarendurskoðun í Evrópu.

Starfsemi deildarinnar er fjölþætt. Helstu verkefni deildarinnar eru:

    Í flugvernd er að:

  • Koma á og viðhalda flugverndaráætlun Íslands.
  • Samþykkja flugverndaráætlanir flugvalla og flugrekanda
  • hafa eftirlit með framkvæmd þeirra
  • Móta, viðhalda og samræma þjálfunaráætlun fyrir flugvernd á Íslandi
  • Sjá um erlend samskipti vegna flugverndarmála. T.d. ICAO, ECAC, ESB og Norðurlönd
  • Sjá um samræmingu og uppfærslu reglugerða um flugvernd.

    Í tengslum við flugvelli er að:

  • Sjá um að unnið sé almennt eftir reglugerð um flugvelli nr. 464/2007
  • Samþykkja starfsleyfi og rekstrarleyfi flugvalla og hafa eftirleit með þeim
  • Sjá um skráningu flugvalla, þyrluvalla og lendingarstaða sem eru háð samþykki Flugmálastjórnar
  • Taka þátt í starfi GASR (Group of Aerodrome Safety Regulators) fyrir hönd Flugmálastjórnar