Íslenskir flugvellir eru vottaðir skv. Rg. nr. 464 um flugvelli frá árinu 2007. Vottun flugvalla á Íslandi hófst árið 2004 en þá var reglugerð um flugvelli fyrst gefin út hérlendis. Reglugerðin endurspeglar að mestu leyti Viðauka 14, Hluta I og II við Chicago sáttmálann hvað varðar flugvelli í flokki I og þyrluvelli. Sér-íslenskur hluti er í reglugerðinni og fjallar hann aðallega um flugvelli í flokki II og í flokki skráðra lendingarstaða.
Samkvæmt reglugerðinni ber rekstraraðilum flugvalla að sækja um starfsleyfi fyrir rekstrinum. Starfsleyfi skv. reglugerðinni eru tvenns konar; rekstrarleyfi og staðfest skráning. Rekstrarleyfi er veitt til reksturs flugvalla í flokki I.
Flugvöllum er skipt í eftirfarandi fjóra flokka; Flugvöllur I, Flugvöllur II, Skráður lendingarstaður, þyrluvöllur.
Flugvellir í flokki I teljast alþjóðaflugvellir og þjóna millilandaflugi. Aðrir flokkar flugvalla eru skráningarskyldir og þjóna flugi hér innanlands og uppfylla almennt ekki að fullu kröfur sem gerðar eru til alþjóðaflugvalla.
Nú eru 4 flugvellir á Íslandi í flokki flugvalla I:
- Akureyrarflugvöllur
- Egilsstaðaflugvöllur
- Keflavíkurflugvöllur
- Reykjavíkurflugvöllur
Auk þess vottar Flugmálastjórn Íslands flugvöllinn í Pristina í Kosovo.
Enginn flugvöllur er nú starfræktur í flokki II.
Flugvellir í flokki skráðra lendingarstaða eru á sjöunda tug en skrá um þá má sjá í flugvallakaflanum í Flugmálahandbókinni AIP-Ísland.
Segja má að fimmti flokkurinn sé í raun til en það eru lendingar- og flugtakssvæði sem flugmenn ákveða að nota utan flugvalla sem hafa starfsleyfi frá Flugmálastjórn Íslands. Flugmálastjórnin hefur gefið út upplýsingabréf um lendingar eða flugtök utan flugvalla (AIC B03/2007). Slík svæði eru óvottuð með öllu frá hendi Flugmálastjórnar en lendingar utan vottaðra flugvalla eru algerlega á ábyrgð viðkomandi flugstjóra. Athygli er vakin á að ef lendingar- og flugtakssvæði er farið að líta út sem flugvöllur er skv. reglugerðinni skylt að skrá svæðið sem flugvöll. Þessi skylda til skráningar er skv. gr. 5 sem hljóðar svo: „Óheimilt er að reka skráningarskyldan flugvöll, án þess að staðfest skráning sé í gildi.“