Ársskýrsla Flugmálastjórnar Íslands 2008
3.6.2009
Ársskýrsla Flugmálastjórnar Íslands fyrir árið 2008 er komin út. Í skýrslunni fjallar Pétur K. Maack flugmálastjóri meðal annars um starfssemi eftirlitsstofnana og segir frá því að Flugmálastjórn Íslands fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftferða og er því bæði bakjarl þeirra sem stunda flug og varðhundur almennings gagnvart þeim og starfssemi þeirrra. Í skýrslunni koma auk þess fram tölulegar upplýsingar um flugflota íslenskra flugrekanda, flugtíma og fjölda skírteinishafa sem hafa skírteini í gildi gefin út af Flugmálastjórn.