Flugrekendur

Allir handhafar íslenskra flugrekstrarleyfa þurfa að uppfylla kröfur um fullnægjandi fjárhagstöðu skv. 5. gr. reglugerðar (EBE) nr. 2407/92 um veitingu flugrekstrarleyfa til handa flugrekendum sem innleidd var í íslenskan rétt með reglugerð nr. 969//2008 um veitingu flugrekstrarleyfa, markaðsaðgang flugrekenda, fargjöld og farmgjöld í flugþjónustu innan Evrópska efnahagssvæðisins. Handhafar íslenskra flugrekstrarleyfa sem stunda millilandaflug skulu jafnframt uppfylla kröfur skv. 5. og 8. gr. reglugerðar (EB) nr. 1008/2008 um sameiginlegar reglur fyrir rekstur flugþjónustu í Bandalaginu sbr. ákvörðun Flugmálastjórnar Íslands nr. 2/2010 sem birt var með auglýsingu nr. 188/2010.

    Flugrekandi skal árlega afhenda Flugmálastjórnar Íslands eftirfarandi gögn vegna áframhaldandi mats á fjárhagsstöðu skv. ofangreindum reglugerðum:
  • Ársreikningur – Almennur skilafrestur 30. júní
    Afhenda skal endurskoðaðan ársreikning eigi síðar en sex mánuðum eftir að viðkomandi reikningsári lýkur. Ársreikningurinn skal samanstanda af sundurliðuðum rekstrarreikningi, efnahagsreikningi og sjóðsstreymi. Ársreikningur án áritunar löggilds endurskoðanda telst ekki fullnægjandi.
  • Rekstrar- og efnahagsáætlun – Almennur skilafrestur 31. mars
    Rekstraráætlun fyrir næsta reikningsár skal vera með sundurliðaða tekju- og kostnaðarliði og í samanburðarhæfu formi við ársreikning. Þá skal áætlunin innihalda lausafjáráætlun fyrir komandi rekstrarár. Áætlunin skal vera sundurliðuð á mánuði. Greina skal sérstaklega frá gefnum reikniforsendum og öllum rekstrarlegum breytingum frá fyrra ári. Ekki er hægt að framkvæma fjárhagsmat sé þessum kröfum Flugmálastjórnar um framsetningu ekki fylgt.

Leiki vafi á því að flugrekandi uppfylli fjárhagskröfur áskilur Flugmálastjórn sér rétt til að fá álit frá endurskoðanda á vegum stofnunarinnar á kostnað flugrekanda sbr. gr. 10.3 í gjaldskrá fyrir þjónustu Flugmálastjórnar Íslands nr. 661/2009 ásamt síðari breytingum.

Farið er með allar fjárhagsupplýsingar flugrekenda sem trúnaðarmál.

Sé óskað eftir fresti til að skila umbeðnum gögnum skal gera það skriflega með rökstuðningi eins fljótt og kostur er og eigi síðar en á tilsettum skiladegi.

Gögnum þessum skal skila beint til deildarstjóra fjármáladeildar Flugmálastjórnar Íslands.

Yfirferð gagna og útgefið mat Flugmálastjórnar: Flugmálastjórn áskilur sér 30 virka daga til að fara yfir gögn og framkvæma fjárhagsmat. Undantekningar geta verið á skilafresti ef endurnýjun heimildar er gerð með fleiri en 30 virkum dögum fyrir almennan skilafrest.