Starfsleyfishafar þjálfunar flugumferðarstjóra
Um fjárhagskröfur til starfleyfishafa fyrir þjálfun flugumferðarstjóra er fjallað 18. gr. reglugerðar um skírteini flugumferðarstjóra nr. 404/2008.
Starfsleyfishafi þjálfunar flugumferðarstjóra skal afhenda Flugmálastjórnar Íslands eftirfarandi gögn vegna áframhaldandi mats á fjárhagsstöðu:
- Ársreikningur – Almennur skilafrestur 30. júní
Afhenda þarf endurskoðaðan ársreikning eigi síðar en sex mánuðum eftir að við komandi reikningsári lýkur. Ársreikningurinn skal samanstanda af sundurliðuðum rekstrarreikningi, efnahagsreikningi og sjóðsstreymi. Ársreikningur án áritunar löggilds endurskoðanda telst ekki fullnægjandi.
- Rekstrar- og efnahagsáætlun – Almennur skilafrestur 31. mars
Rekstraráætlun fyrir næsta reikningsár skal vera með sundurliðaða tekju- og kostnaðarliði og í samanburðarhæfu formi við ársreikning. Þá skal áætlunin innihalda lausafjáráætlun fyrir komandi rekstrarár. Áætlunin skal vera sundurliðuð á mánuði. Greina skal sérstaklega frá gefnum reikniforsendum og öllum rekstrarlegum breytingum frá fyrra ári. Ekki er hægt að framkvæma fjárhagsmat sé þessum kröfum Flugmálastjórnar um framsetningu ekki fylgt.
Leiki vafi á því að starfsleyfishafi þjálfunar flugumferðarskóla uppfylli fjárhagskröfur áskilur Flugmálastjórn sér rétt til að fá álit frá endurskoðanda á vegum stofnunarinnar á kostnað leyfishafa sbr. gr. 10.3 í gjaldskrá fyrir þjónustu Flugmálastjórnar Íslands nr. 661/2009 ásamt síðari breytingum.
Farið er með allar fjárhagsupplýsingar leyfishafa sem trúnaðarmál.
Sé óskað eftir fresti til að skila umbeðnum gögnum skal gera það skriflega með rökstuðningi eins fljótt og kostur er og eigi síðar en á tilsettum skiladegi.
Gögnum þessum skal skila beint til deildarstjóra fjármáladeildar Flugmálastjórnar Íslands.
Yfirferð gagna og útgefið mat Flugmálastjórnar: Flugmálastjórn áskilur sér 30 virka daga til að fara yfir gögn og framkvæma fjárhagsmat. Undantekningar geta verið á skilafresti ef endurnýjun heimildar er gerð með fleiri en 30 virkum dögum fyrir almennan skilafrest.