Sú ímynd sem Flugmálastjórn Íslands vill skapa er í hnotskurn þessi:
  • Við viljum að stofnuninni sé treyst í hvívetna og hún sé þekkt fyrir fagleg vinnubrögð.
  • Við viljum að stofnunin sé sjálfstæð og komi málum sínum á framfæri með lagni, kurteisi og ákveðni fremur en kærum og hamagangi.
  • Við erum hljóðlát og búum ekki til moldviðri. Við veitum greiðlega áreiðanlegar upplýsingar um málefni þegar leitað er til okkar og komum jafnframt mikilvægum upplýsingum á framfæri að gefnu tilefni, þó án þess að rjúfa trúnað.