Flugmálastjórn Íslands hefur sett sér stefnumið á sjö sviðum. Í fyrsta lagi varðandi viðskiptavini. Annað stefnumiðið nær til meginferla stofnunarinnar þar sem áhersla er á skjalfestingu, gæðakerfi og rekjanleika. Síðan er fjallað um mannauð með áherslu á menntun, þjálfun og fjölbreyttan bakgrunn starfsmanna. Í fjármálum er sérstök áhersla á að greiðslur þeirra sem heimildir hafa standi það vel undir kostnaði að ekki komi til tafa á afgreiðslu og við ákvörðun gjaldskrár sé tekið tillit til alls kostnaðar, svo sem þjálfunar starfsmanna og almennra samskipta við erlendar stofnanir. Lögð er áhersla á að eiga góð samskipti við alla aðila, bæði atvinnurekendur á sviði flugmála, áhugamannafélög, hagsmunaaðila og einstaklinga. Styðja skal rannsóknir í einhverjum mæli til að styðja vandaða ákvörðunartöku og bæta eftirlit. Hvað varðar umhverfismál er stefnan sú að fylgja Evrópuþjóðunum (ECAC) í þeim málaflokki.

    Viðskiptavinir/hagsmunaaðilar
  • Tryggja að flugöryggi sé ætíð yfir viðurkenndum öryggismörkum og flugvernd fullnægjandi.
  • Halda uppi öflugu og sanngjörnu eftirliti með flugstarfsemi og sjá til þess að hún njóti viðurkenningar á alþjóðavettvangi eins og við á.
  • Stuðla að því að hvers konar flugstarfsemi dafni hér á landi í sátt við samfélagið og umhverfið.
  • Veita þeim sem stunda atvinnurekstur í flugi og öðrum þeim sem flugsamgöngur
  • nota faglega og góða þjónustu sem og vandaða úrlausn stjórnsýsluerinda.
  • Veita almenningi, hagsmunaaðilum, ráðuneyti og starfsmönnum upplýsingar um markmið og starfsemi stofnunarinnar. <>Gæta hagsmuna aðila í flugi með þátttöku í fundum og starfsemi alþjóðlegra stofnana.

    Ferlar
  • Tryggja að allir ferlar varðandi heimildarveitingar og eftirlit séu skjalfestir og þeim lýst í gæðakerfi. Úttektum ljúki alltaf með skýrslu og eftirfylgni.
  • Framkvæmd einstakra verkferla sé skjalfest í skrám/gögnum og afgreiðsla mála/heimilda rekjanleg lið fyrir lið.
  • Leggja áherslu á að munnlegar upplýsingar geti aldrei verið afgreiðsla eða heimild heldur aðeins leiðbeining.

    Mannauður
  • Leggja áherslu á að stofnunin hafi á að skipa hæfu og dugmiklu starfsfólki með góða og fjölbreytta menntun.
  • Stuðla að menntun og þjálfun starfsmanna og efla góðan starfsanda.
  • Starfsmenn njóti góðs aðbúnaðar.
  • Leitað sé til sérfræðinga utan stofnunar eftir því sem nauðsyn krefur.

    Rannsóknir og þróun
  • Styðja rannsóknir og þróun á sviði flugmála til að stuðla að og auðvelda vandaða ákvörðunartöku og eftirlit.

    Samstarf
  • Efla samskipti og samráð við innlenda og erlenda aðila sem að flugsamgöngum koma til hagsbóta fyrir íslensk flugmál.
  • Sérstök áhersla skal lögð á þátttöku í evrópsku samstarfi, samráði við rekstraraðila í flugi svo og áhugamannafélög hérlendis.

    Fjármál
  • Tryggja í samstarfi við samgönguráðuneytið að úttektir og vinna við heimildarveitingar frestist ekki sakir fjárskorts.
  • Aldrei myndist biðraðir þar sem beðið er eftir úrlausn mála.
  • Greiðsla fyrir þjónustu greiðist af þeim sem hennar njóta og skal eftirlit með leyfishöfum standa undir sér.

    Umhverfismál
  • Fylgja skal stefnu ESB og ECAC hvað varðar útblástur og hávaða en sérstaklega skal þó huga að sérstöðu Íslands í flugsamgöngum.