Yfirlit yfir lög og reglur í flugi
Í dálknum vinstra megin er að finna yfirlit yfir lög og reglur sem Flugmálastjórn Íslands starfar eftir eða kemur að vinnslu vegna þeirra. Heiti flestra undirþátta útskýra sig sjálfir.
Flugöryggi er með nokkra undirþættir sem snúa að öryggi í flugi eftir tegund flugs.
Atvinnuflug, einkaflug, lofthæfi og skráning, skírteini einstaklinga, flugatvik (flugslys) og síðan er flokkurinn "annað" þar sem er efni sem fellur ekki bein í flokkana.
Flugvernd segir frá öryggiskröfum á flugvöllum
Flugheimildir segja frá leyfum sem þarf að sækja um til að halda t.d. flugsýningu eða flug um íslenska lofthelgi.
Hlutinn um flugmálagögn er ætlaður aðilum sem starfa í flugiðnaðinum til að getað fylgst með breytingum á regluverki flugsins.
Ákvarðanir Flugmálastjórnar Íslands eru birtar upplýsingar um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli 140. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 og reglna settra samkvæmt þeim sem almennt gildi hafa en birtast eiga í Stjórnartíðindum.
Ákvarðanirnar eru flokkaðar eftir helstu viðfangsefnum Flugmálastjórnar og eru birtar á heimasíðu. Einnig er hægt að skoða allar ákvarðanir í tímaröð frá 1998.